Skilmálar þjónustunnar

Útgáfa 1 · gildir frá 20. september 2026 · Þjónustuveitandi: einstaklingur með starfsemi undir heitinu Kmskráning (nánar í tilboðs- og reikningspósti).

1. Þjónustan

Kmskráning er vefþjónusta til að skrá kílómetrastöðu ökutækja með QR-kóða og halda utan um skráningar, starfsmenn, verk og útflutning gagna. Þjónustan er hýst í Microsoft Azure á Norður-Evrópusvæði (Írland).

2. Prufutími og áskrift

  1. Nýtt fyrirtæki fær 90 daga ókeypis prufutíma með fullri virkni. Ekkert greiðslukort er skráð og ekkert er rukkað á prufutíma.
  2. Í lok prufutíma velur fyrirtækið hvort það heldur áfram. Að öðrum kosti heldur skráning bílstjóra áfram í allt að 30 daga í viðbót en umsjónarsíðan biður um staðfestingu; eftir það getur þjónustuveitandi lokað aðgangi og eytt gögnum með 14 daga fyrirvara í tölvupósti.
  3. Áskrift er mánaðargjald sem fer eftir fjölda virkra ökutækja og er gefið upp án vsk. Verðið sést á umsjónarsíðunni áður en staðfest er. Reikningur er sendur í tölvupósti; gjalddagi 14 dagar.
  4. Engin binding. Uppsögn með tölvupósti eða með því að eyða fyrirtækinu á umsjónarsíðunni; greitt er fyrir yfirstandandi mánuð.

3. Aðgangur og ábyrgð notenda

4. Gögn og persónuvernd

Fyrirtækið er ábyrgðaraðili gagnanna; þjónustuveitandi er vinnsluaðili. Þessi kafli gildir sem vinnslusamningur skv. 28. gr. GDPR / laga nr. 90/2018.

5. Rekstraröryggi

6. Breytingar

Skilmálum má breyta með 30 daga fyrirvara í tölvupósti til umsjónarmanna. Haldi fyrirtækið áfram að nota þjónustuna eftir að breytingar taka gildi telst það samþykki.

7. Lög og varnarþing

Íslensk lög gilda. Ágreiningi skal vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Spurningar um skilmála eða persónuvernd: svaraðu velkomin-póstinum sem fyrirtækið fékk við skráningu.