QR-miði á mælaborðið. Bílstjórinn skannar, slær inn km og starfsmannanúmer – og skráningin er komin í kerfið. Ekkert app, engin innskráning, engin notendaleyfi.
Engin þjálfun. Ef bílstjórinn kann að skanna QR-kóða þá kann hann að nota kerfið.
Hver bíll fær sinn QR-kóða. Síminn opnar síðu bílsins – engin innskráning, ekkert app.
Síðasta staða sést strax. Starfsmannanúmerið er munað á símanum, verknúmer er valfrjálst.
Kerfið hafnar vitleysu (lægri staða en síðast, óþekkt starfsmannanúmer) og spyr „Er þetta rétt?“ ef stökkið er stórt.
Yfirlit yfir flotann, flaggaðar skráningar, km á verk, CSV í Excel eða Power BI. Innskráning með Microsoft 365-reikningi fyrirtækisins – engin ný lykilorð. Skoða sýnishorn →
Bæði bílstjórasíðan og umsjónarsíðan eru opnar sem sýnishorn með gervigögnum. Ekkert vistast.
Þetta sér bílstjórinn eftir að hafa skannað miðann. Sláðu inn hvaða starfsmannanúmer sem er og km-stöðu – prófaðu líka að slá inn of lága tölu eða stórt stökk til að sjá gæðavörnina.
Best í síma – eða opnaðu í tölvu og minnkaðu gluggann.
UmsjónarmaðurinnYfirlit yfir flotann, skráningar með síum, km á verk, bílar og starfsmenn – með sýnishornsflota upp á fimm bíla og mánuð af skráningum. Prófaðu að merkja skráningu yfirfarna, sækja CSV eða prenta QR-miða.
Í alvöru kerfi er innskráð með Microsoft 365-reikningi fyrirtækisins.
Það sem þarf – og ekkert meira.
Bílstjóri skráir sama verknúmer við upphaf og lok verks. Kerfið reiknar ekna km á hvert verk og bíl – tilbúið til reikningsgerðar.
Óþekkt starfsmannanúmer, lægri staða en síðast, óraunhæf stökk og tvískráningar eru stöðvaðar eða flaggaðar til yfirferðar.
Yfirlit, skráningar, verk, bílar og starfsmenn. Bæta við bíl, leiðrétta stöðu, gefa út nýjan QR-kóða, loka bíl.
CSV-útflutningur með bílnúmeri, km, starfsmanni, verknúmeri og tíma. Beint í pivot-töflu eða mælaborð.
Prenttilbúnir miðar fyrir hvern bíl – eða STL-skrár fyrir plötu sem þolir sól og þrif betur.
Hýst í Azure í Norður-Evrópu með gögn hvers fyrirtækis aðskilin, eða sett upp í ykkar eigin Azure-áskrift. Umsjón læst með Microsoft 365-innskráningu. Engir lyklar, engin utanaðkomandi þjónusta.
Berðu saman við það sem fyrirtæki nota í dag.
| Kmskráning | Aksturskubbur / GPS | Excel eða blað í bílnum | Power Apps | |
|---|---|---|---|---|
| Vélbúnaður í bíl | Enginn – bara miði | Kubbur + uppsetning í hverjum bíl | Enginn | Enginn |
| Notendaleyfi | Engin | Oft á hvern bíl | Engin | Á hvern notanda á mánuði |
| Bílstjóri þarf app / innskráningu | Nei | Yfirleitt | Nei | Já |
| Villur stöðvaðar við innslátt | Já | Já (sjálfvirkt) | Nei | Fer eftir útfærslu |
| Km á verk | Já | Sjaldan | Handvirkt | Þarf að smíða |
| Kostnaður | Fast mánaðargjald, engin leyfi | 3.000–6.000 kr. + kubbur | Tími umsjónarmanns | Leyfi + smíði |
Sama kerfi, sömu eiginleikar. Munurinn er hver rekur það og hvar gögnin eru.
Skráðu fyrirtækið með Microsoft 365-reikningi, bættu við bílum, prentaðu miða. Engin uppsetning, ekkert Azure, engin bið.
Kerfið keyrir í Azure-áskrift fyrirtækisins – gögnin fara aldrei út fyrir hana. Við setjum upp á einum degi og sjáum um uppfærslur.
Allur frumkóði, uppsetningarskriftur og skjölun afhent. Ykkar tæknifólk setur upp og rekur; engin tenging við okkur eftir það.
Segðu okkur hve margir bílar eru í flotanum. Tilboð með verði fyrir allar þrjár leiðirnar berst sjálfkrafa í tölvupósti innan 15 mínútna. Viltu bara byrja? Skráðu fyrirtækið – verðið sést líka þar.
Fast mánaðargjald sem fer eftir fjölda bíla – engin leyfi á starfsmenn eða notendur. Hýsta leiðin hefur ekkert uppsetningargjald og 90 daga fría prufu; í ykkar Azure bætist uppsetningargjald við; eigið kerfi er eingreiðsla. Sláðu inn fjölda bíla hér að ofan og nákvæmt tilboð berst í tölvupósti innan 15 mínútna.
QR-kóðinn auðkennir bara bílinn og skilar aðeins bílnúmeri og síðustu stöðu. Skráning þarf gilt starfsmannanúmer, hafnað er lægri stöðu en síðast, og hámark er á fjölda skráninga á bíl og dag. Ef miði kemst í rangar hendur er gefinn út nýr kóði með einum smelli.
Kerfið er hugsað fyrir stöðu flotans, viðhald og km á verk. Starfsmaður auðkennir sig með númeri, ekki innskráningu. Ef þarf skjalfestingu fyrir hlunnindi eða skatt setjum við Entra-innskráningu fyrir framan bílstjórasíðuna – síðan sjálf breytist ekki.
Hýsta leiðin: í Azure í Norður-Evrópu (Írland), gögn hvers fyrirtækis aðskilin, engir deililyklar, TLS 1.2, dulkóðað í hvíld. Þið getið sótt öll gögn sem CSV og eytt fyrirtækinu hvenær sem er; skilmálarnir innihalda vinnslusamning. Leiðir 2 og 3: í ykkar eigin Azure-áskrift.
Síðan er örlítil og opnast á sekúndubroti á 3G. Ef ekkert samband er þá er einfaldlega skráð næst þegar það kemur – kerfið sér um að staðan sé rétt í röð.
Nei. Kerfið er sjálfstætt Azure Function App, keyrt á notkunarmældu plani. Umsjónarsíðan notar Microsoft 365-reikninga sem þið eigið nú þegar.
Uppsetning í Azure tekur undir klukkustund. Með innlestri bíla og starfsmanna, prentun miða og kennslu er flotinn yfirleitt kominn í gang innan viku frá pöntun.